ruv
Íbúar af um 30 þjóðernum búa í Mýrdalshreppi
By Fréttastofa RÚV
Íbúum í Vík í Mýrdal fjölgar stöðugt en á sama tíma fjölgar þeim á staðnum sem eru af erlendum uppruna, en nú eru þeir orðnir um 60% af íbúum í sveitarfélaginu. Fólk af um 30 þjóðernum býr í Vík. Í Mýrdalshreppi búa á tólfta hundrað íbúar en í þorpinu sjálfu búa um þúsund manns. Atvinnulífið gengur meira og minna allt út á þjónustu við ferðamenn og það virðist ekkert lát vera á ferðamannastraumnum í Vík og næsta nágrenni. „Íbúafjöldinn hefur náttúrulega rúmlega tvöfaldast á 10 árum og það e...