PERSPECTA

News from every angle

ruv

Orban endurkjörinn formaður Fidesz

By Fréttastofa RÚV

Viktor Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, var endurkjörinn formaður flokks síns, Fidesz, í dag, um tveimur mánuðum eftir stórtap í þingkosningum sem bundu enda á 16 ára valdatíð hans. Orban, sem er 62 ára, hefur um árabil verið einn af merkisberum evrópskra harðlínuflokka af hægri vængnum. Samkvæmt frétt Reuters hafði myndast þrýstingur innan raða Fidesz um að hann ætti að þekkja sinn vitjunartíma, það varð þó lítið úr slíkum hugmyndum á flokksþingi í dag, þar sem 729 af 737 ...