ruv
Fluttur á sjúkrahús með þyrlu eftir vinnuslys
By Fréttastofa RÚV
Karlmaður sem slasaðist í vinnuslysi í nágrenni við Hellu var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segist ætla að maðurinn sé kominn á sjúkrahús. Lögreglu barst útkallið upp úr klukkan ellefu og lögregla, sjúkraflutningamenn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fóru á vettvang. Einar segist ekki vita hve alvarlegir áverkar mannsins séu.