ruv
Göngukona slasaðist við Hólmavatn
By Fréttastofa RÚV
Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna konu sem hafði verið á göngu og slasast við Hólmavatn suðaustur af Sauðárkróki í Skagafirði fyrr í kvöld. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi flutt konuna suður til aðhlynningar. Þyrlan lenti með konuna rúmlega níu í kvöld við Landspítalann í Fossvogi.