ruv
HK er bikarmeistari eftir æsispennandi leik
By Fréttastofa RÚV
HK er bikarmeistari kvenna í blaki eftir spennandi úrslitaleik gegn KA. HK komst í 2-0 en það kviknaði neisti hjá KA í þriðju hrinu. Á tíma leit út fyrir að leikurinn væri á leið í oddahrinu en að lokum sigldi HK bikarnum heim fyrir framan sitt fólk í Digranesi. HK konur komu öruggar út og náðu að slíta sig frá KA að lokum í fyrstu hrinunni. Fyrsta hrinan vannst 25-17. HK konum virtist líða vel á heimavelli í Digranesinu og komust í 11-5 eftir upphafssyrpuna í 2. hrinu. Þá vöknuðu KA konur ti...