ruv
Dregur úr vindi og úrkomu
By Fréttastofa RÚV
Mesta óveður gærdagsins er gengið yfir og heldur dregur úr vindi og úrkomu fyrir norðan. Enn er þó hvöss norðan- og norðaustanátt. Norðan og norðaustan átta til fimmtán í dag. Él norðantil, en víða léttskýjað sunnan heiða. Vaxandi norðaustanátt í kvöld. Norðan tíu til átján á morgun, en norðvestlægari norðaustan- og austanlands seinnipartinn. Víða snjókoma fyrir norðan, en þurrt og bjart veður um landið sunnanvert. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum.