ruv
Björgunarsveitir stóðu í ströngu á Sandskeiði og Vestfjörðum
By Fréttastofa RÚV
Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að á öðrum tímanum í nótt hafi Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið send upp á Sandskeið til að aðstoða fjölda fólks sem lent hafði í vandræðum vegna slæmrar færðar og skyggnis. Þar stóðu bílar fastir frá Lækjarbotnum og austur fyrir afleggjarann upp í Bláfjöll. Mikil hálka var á veginum...