PERSPECTA

News from every angle

ruv

Ingibjörg fékk brons í Portúgal

By Fréttastofa RÚV

Íslenskt landsliðsfólk í taekwondo keppi á sterku G1 móti í Portúgal um helgina. Ingibjörg Erla Grétarsdóttir vann til bronsverðlauna í -62 kílóa flokki þar sem 20 keppendur voru skráðir til leiks. Eftir að hafa setið hjá í fyrstu umferð vann hún öruggan 2–0 sigur á spænskum keppanda í 16 manna úrslitum. Í átta manna úrslitum beið hennar sterkur andstæðingur frá Frakklandi. Þar hafði Ingibjörg betur, 2–1, eftir spennandi viðureign og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar mætti hún keppanda fr...