ruv
Óska eftir upplýsingum um Háskólann á Bifröst
By Fréttastofa RÚV
Ríkisendurskoðun hefur sent fyrirspurn á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti um málefni Háskólans á Bifröst. „Við höfum sent ráðuneytinu fyrirspurn en það er engin úttekt hafin á þessu stigi,“ segir Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi í samtali við fréttastofu. Talsvert hefur verið fjallað um mál Háskólans á Bifröst í fjölmiðlum síðustu mánuði. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, sagði af sér í febrúar í kjölfar svokallaðs siðanefndarmáls þar sem þrír kennarar sætt...