ruv
Fær ekki að fljúga á meðan lágflugið er til rannsóknar
By Fréttastofa RÚV
Flugmaður Icelandair, sem flaug með flugstjóranum sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum, flýgur ekki á meðan verið er að rannsaka atvikið. Þetta herma heimildir fréttastofu. Flugstjórinn var að fljúga sitt hinsta flug er atvikið átti sér stað og hefur látið af störfum. Arnar Már Magnússon, flugrekstrarstjóri hjá Icelandair, segir rannsókn á málum sem þessum taka á bilinu 4-6 vikur. Gögn úr flugrita vélarinnar liggja fyrir en Arnar Már vildi ekki tjá sig um hve lágt flugvélin flaug yfir bænum,...