ruv
Íslandsmethafi í hálfa öld
By Fréttastofa RÚV
Á þessum degi fyrir hálfri öld bætti Þórdís Íslandsmet Láru Sveinsdóttur í hástökki um fjóra sentimetra þegar hún stökk 1,73 metra. Metið setti Þórdís á móti í Finnlandi 13. júní árið 1976. Þórdís var aðeins fimmtán ára á þessum tíma og Íslandsmetið hennar var jafnframt lágmark inn á Ólympíuleikana sem haldnir voru sama sumar í Montreal í Kanada. Þórdís átti svo á næstu 14 árum eftir að bæta Íslandsmet sitt átta sinnum í viðbót og alveg upp í 1,88 metra. Þetta síðasta Íslandsmet setti hún ári...