ruv
Íranar gera árásir á Kúveit og Bahrein
By Fréttastofa RÚV
Árásir hafa staðið yfir á Kúveit og Bahrein í nótt. Loftvarnarflautur fóru í gang í Barhein og íbúar voru hvattir til að fara í öruggt skjól og halda ró sinni. Bandarísk herstöð er í Bahrein. Þá hefur herinn í Kúveit einnig varað íbúa landsins við að leita skjóls vegna flugskeyta- og drónaárása, samkvæmt tilkynningu hersins á X. Íranski byltingarvörðurinn segir árásirnar á Kúveit og Bahrein vera hefndarárásir fyrir árásir Bandaríkjanna í gær. Í tilkynningu frá byltingarverðinum segir að þeir ...