morgunbladid
Skagfirðingar ætluðu alls ekki í sumarfrí í kvöld

Tindastóll svaraði fyrir sig í einvíginu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í kvöld með sigri í Síkinu, 103:88. Tindastóll náði snemma góðri forystu í leiknum og var morgunljóst að liðið ætlaði sér alls ekki í sumarfrí strax.