morgunbladid
Hilmar sló eigið Íslandsmet

Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson setti nýtt Íslandsmet í morgun þegar hann kastaði 78,03 metra á Evrópubikarkastmótinu sem fram fer í Kýpur. Kastið tryggði Hilmari einnig sæti á Evrópumótinu í Birmingham í sumar.