ruv
Piparmeyjar: Alveg sérlega vel heppnuð saga
By Fréttastofa RÚV
Í bókinni Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi rekur Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir stórmerkilega sögu kvenna sem fengu í fang það hlutskipti að sjá um foreldra sína, heimili þeirra og jafnvel börn systkina sinna. Konur á borð við Reykjavíkurmeyna fröken Thoru Friðriksson, sem þurftu að setja eigið líf og drauma á ís fyrir aðra, óháð því hvað þær höfðu að bjóða heimi sem launaði þeim oft með litlu öðru en vanþakklæti og neikvæðum stimpli piparmeyjarinnar. „Saga henna...