PERSPECTA

News from every angle

ruv

Tvær milljónir dönsuðu við tónlist Shakiru á útitónleikum á Copacabana-ströndinni

By Fréttastofa RÚV

Rúmlega tvær milljónir stigu í kvöld dans undir fullu tungli við seiðandi tónlist kólumbísku poppstjörnunnar Shakiru á Cobacabana-ströndinni við borgina Rio de Janeiro í Brasilíu. Ekkert kostaði inn á tónleikana sem eru hluti Las Mujeres Ya No Lloran-túrsins, eða Konur gráta ei meir, sem hófst einmitt í Rio á síðasta ári. Samnefnd plata kom út árið 2024. Shakira Isabel Mebarak Ripoll verður fimmtug snemma á næsta ári og hóf ferilinn árið 1990. Hún hefur nánast frá upphafi verið geysivinsæl í ...