ruv
Allt að sjö metra þykkt flóð: Með þeim stærri sem menn muna
By Fréttastofa RÚV
Þó að það sé blíðviðri í dag hefur snjóað mikið á Tröllaskaga síðustu daga. Síðan á miðvikudag hefur mælst uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði og Ólafsfirði, um og yfir 100 millimetrar. Í nótt eða seint í gærkvöldi féllu snjóflóð úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki á Siglufjarðarveg skammt utan við bæinn, milli Strákaganga og Siglufjarðar. „Miðað við umfangið og breiddina á þessu er þetta allavega 150 metra breitt og 8-900 metra langt,“ segir Gestur Hansson snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði. „Þetta vi...