ruv
Loka veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu
By Fréttastofa RÚV
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Með tilliti til veðurspár verður veginum lokað á miðnætti í kvöld, aðfaranótt sunnudags. Gul viðvörðun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt vegna norðaustanstorms og verður viðvörunin í gildi til níu annað kvöld. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu, snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð. Snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð snemma í gærmorgun.Davíð Pierre Mi...