ruv
Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
By Fréttastofa RÚV
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum frá miðnætti í kvöld samkvæmt tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. Þá verða nokkur atvinnuhúsnæði rýmd á Ísafirði í fyrramálið. Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað vegna snjóflóðahættu á vegum. Nokkur minni snjóflóð hafa fallið, m.a. á vegi, en ekkert mjög stórt. Mikill nýr snjór er á svæðinu eftir norðan- og norðvestan veður. Aðfaranótt...