ruv
Hver fann Tútankamon?
By Fréttastofa RÚV
Sebastian, sex ára, langaði að vita hver fann Tútankamon. Hann sendi spurninguna sína til þáttarins Hvað viltu vita? á Rás 1. Það eru nýir þættir þar sem krakkar spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara. En hver var þessi Tútankamon? „Tútankamon var faraó eða konungur Egyptalands til forna. Hann var fæddur í kringum 1340 fyrir okkar tímatal. Það er fyrir meira en 3300 árum. Hann varð faraó þegar hann var bara átta eða níu ára gamall, þegar pabbi hans, faraóinn Akh...