ruv
Fjölbreytt skemmtun á Akureyri um helgina
By Fréttastofa RÚV
Fjölmargir og fjölbreyttir viðburðir eru á dagskrá í Eyjafirði um helgina. Fyrst ber að nefna Bíladaga, sem hófust 17. júní með glæsilegri bílasýningu í Boganum. Í dag hélt dagskrá hátíðarinnar áfram með driftkeppni og í kvöld verður bílalimbó og vegasalt á svæði félagsins. Hátíðin nær síðan hámarki á laugardagskvöldið þegar hin margrómaða burn-out keppni fer fram. Hinsegin hátíð Norðurlands eystra hófst í dag með regnbogasundi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og lifandi bókakaffi á bókasafni ...