PERSPECTA

News from every angle

ruv

Allt það helsta: Egyptaland – Íran

By Fréttastofa RÚV

Það var nokkuð jafnræði með liðum Egyptalands og Írans í leik þeirra í nótt. Mahmoud Saber kom Egyptum yfir strax á 5. mínútu. Það leið ekki á löngu þar til Íranar jöfnuðu með marki Ramin Rezaeian á 14. mínútu. Í millitíðinni varði Mostafa Shobeir vítaspyrnu frá Mehdi Taremi í liði Írana. Það leit út fyrir að Íranar væru á leið upp úr riðlinum en á lokasekúndum leiksins kom Shoja Khalilzadeh boltanum í netið. Markið var svo dæmt af vegna rangstöðu.