ruv
Halla hittir Leó páfa og forseta Ítalíu
By Fréttastofa RÚV
Halla Tómasdóttir forseti er komin til Ítalíu þar sem hún er í tveggja daga vinnuferð. Halla á einkafund með Leó XIV páfa í Vatíkaninu í dag og ræðir að því loknu við Pietro Parolin kardínála ásamt íslenskum embættismönnum. Parolin er æðsti embættismaður páfastóls. Halla fundar einnig með Sergio Mattarella, forseta Ítalíu, í Quirinale-höllinni í dag og snæðir með honum hádegisverð. Vinnuferð Höllu verður haldið áfram á morgun þegar hún heimsækir Circolo Scandinavo-menningarmiðstöðina í Róm o...