ruv
Borgin semur um leigu á húsi í Ármúla fyrir skólastarfsemi
By Fréttastofa RÚV
Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. fyrir leik- og grunnskólastarfsemi í Ármúla 28 til 30. Á sama fundi var breyting á deiliskipulagi á reitnum samþykkt. Í henni felst að heimilt er að byggja við húsið og gera útisvæði. Þannig á að leysa úr tímabundnum húsnæðisvanda og mæta brýnni þörf nærliggjandi skóla á viðbótarplássi. Húsið er tæpir 2.800 fermetrar á þremur hæðum. Leigutími er tímabundinn til 20 ára og er leigan rúmar 15 milljónir króna á mánuði. Í fylgi...