ruv
Jarðskjálfti af stærðinni 5,2 í Bárðarbungu
By Fréttastofa RÚV
Jarðskjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbunguöskjunni klukkan 5:36 í morgun. Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálfta af þessari stærðargráðu verða reglulega í Bárðarbungu. Síðustu tvö til þrjú árin hafi liðið um tveir til þrír mánuðir að jafnaði á milli skjálftanna. Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu 13. júní og fyrir það í lok janúar. Sigríður segir engin merki um gosóróa. Bárðarbunguaskjan sé að fyllast af kviku og að ...