PERSPECTA

News from every angle

ruv

Engan sakaði þegar skotflaug hæfði flutningaskip á Hormússundi

By Fréttastofa RÚV

Flugskeyti var í nótt skotið að olíuflutningaskipi á Hormússundi um 78 sjómílur, rúma 144 kílómetra, undan strönd Sameinuðu arabísku furstadæmanna, skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að herinn myndi síðar í dag hefja fylgdarsiglingar gegnum sundið. Breska siglingamálastofnunin greindi frá árásinni og sagði áhöfnina ómeidda. Stofnunin hvetur sjófarendur til varkárni meðan yfirvöld rannsaka árásina. Íranar hafa haldið Hormússundi lokuðu frá upphafi stríðsins og herskip Ba...