ruv
Spennan magnast vegna landsmóts hestamanna á Hólum
By Fréttastofa RÚV
Landsmótið á Hólum fer fram í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí en það er Hestamannafélagið Skagfirðingur sem heldur mótið. Fyrstu drög að dagskrá landsmótsins hafa verið birt á heimasíðu mótsins en þar má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið. Hestamenn landsins eru orðnir mjög spenntir fyrir mótinu, Bergur Jónsson í Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi er einn þeirra. „Ég hef heyrt talað um að það sé búið að selja gríðarlega mikið af miðum og veðrið verður gott, það er fallegt í ...