ruv
Landsréttur snýr nauðgunardómi héraðsdóms
By Fréttastofa RÚV
Landsréttur hefur sýknað ungan mann sem sakfelldur var fyrir að nauðga þáverandi kærustu sinni af Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa, þegar hann var tvítugur og hún nítján ára, haft samræði við þáverandi kærustu sína á meðan hún var sofandi og þar af leiðandi nauðgað henni þar sem hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga. Í dómi Landsréttar segir að maðurinn hafi staðfastlega neitað sök. Hann hafi skýrt svo frá að hann hafi átt samræði vi...