ruv
Íslandi skylt til að innleiða reglugerð sem ESB telur Facebook og Instagram brjóta
By Fréttastofa RÚV
Íslensk stjórnvöld hafa unnið að því í fjögur ár að innleiða reglugerð ESB um starfsemi netfyrirtækja sem framkvæmdastjórn ESB telur að Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram, fari á svig við. Frumniðurstöður rannsóknar sem staðið hefur yfir í tvö ár á grundvelli þessarar reglugerðar benda til þess að Meta geri ekki nóg til að hindra aðgang barna undir 13 ára að Facebook og Instagram. Reglugerðin tók gildi árið 2022 og er íslenskum stjórnvöldum skylt að innleiða hana á grundvelli samnin...