ruv
Köld norðanátt fram eftir vikunni
By Fréttastofa RÚV
Sumarið er komið en það verður kaldur vorbragur á landinu næstu daga. Köld norðanátt verður ríkjandi á landinu og blæs nokkuð um landsmenn. Gæðunum verður þó misskipt því útlit er fyrir él á Norður- og Austurlandi í dag og vorhret næstu daga en bjartara verður sunnan til. Hlýjast verður sunnanlands en þó aðeins um sjö stig svo það er kannski ekki kominn tími fyrir stuttbuxur og stuttermaboli. Útlit er fyrir að það hlýni um helgina en þá gæti rignt sunnan- og vestan til. Veðurspáin er svohljóð...