PERSPECTA

News from every angle

ruv

Nágrannar reyndu að hrekja vændiskaupendur burt

By Fréttastofa RÚV

„VARÚÐ!“ svo hófst tilkynning frá nágranna íbúðar sem talið er að vændi hafi verið stundað í. Hann varpaði henni upp á vegg hússins með skjávarpa. Tilkynningin var ætluð hugsanlegum vændiskaupendum og var á ensku. „Þetta hús er undir eftirliti. Hringt verður í lögreglu ef einhver reynir að kaupa þjónustu hér,“ hélt tilkynningin áfram. „Hjálpaðu okkur að halda samfélaginu okkar öruggu.“ Nágrannarnir voru orðnir langþreyttir á ástandinu: stríðum straumi karlmanna sem komu þangað á öllum tímum...