ruv
„Þú og einhverjir þrír í frumskógi í Brasilíu þekkja þetta“
By Fréttastofa RÚV
Gio Reyna skoraði með frábæru utanfótarskoti fyrir Bandaríkin í 4-1 sigri gegn Paragvæ á HM. Arnar Gunnlaugsson fór yfir utanfótarskotin og nafnið trivela, sem er það sem slík skot eru kölluð víðs vegar í fótboltaheiminum. Restin af Stofunni kannaðist hins vegar alls ekki við orðið. Óskar Hrafn gerði góðlátlegt grín að Arnari en Arnar vildi sjá Óskar nota orðið í viðtali eftir leik með KR. Eins og svo oft áður er sjón sögu ríkari.