ruv
Allt það helsta: Kongó - Úsbekistan
By Fréttastofa RÚV
Fyrsta mark leiksins kom á 10. mínútu þegar Eldor Shomurodov skoraði fyrsta og eina mark Úsbeka í leiknum. Það var þó nokkur bið eftir markaregni Kongómanna. Yoane Wissa skoraði vítamark fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó á 68. mínútu, Fiston Mayele kom með annað mark þeirra um tíu mínútum síðar og Wissa skoraði svo sitt annað mark, á 91. mínútu. Wissa var jafnframt valinn maður leiksins. Kongómenn mæta Englendingum í 32-liða úrslitum á miðvikudaginn í Atlanta í Bandaríkjunum.