PERSPECTA

News from every angle

ruv

Leita að húsnæði undir heimavist á Selfossi

By Fréttastofa RÚV

Um þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands en þeir koma af öllu Suðurlandi og þeir sem búa lengst frá skólanum eru oft á heimavist. Núverandi heimavist er í leiguhúsnæði en það húsnæði var meðal annars dvalarheimili fyrir aldraða á Selfossi til margra ára og hentar skólanum ekki sem heimavist. Það þarf því nýja heimavist fyrir næstu skólaár og er búið að undirbúa auglýsingu til að auglýsa eftir nýju húsnæði. „Þetta hefur verið unnið í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið o...