ruv
Segist skilja áhyggjur landeigenda
By Fréttastofa RÚV
Frumvarpsdrög um breytingar á raforkulögum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðar. Markmið þeirra er að flýta uppbyggingu raforkuvinnviða meðal annars með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki til þess að framkvæmdir frestist. Landeigendur hafa lýst áhyggjum af þessum áformum. Þeir óttast að verið sé að fórna hagsmunum þeirra fyrir hagsmuni stóriðjunnar. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- og orkumálaráðherra segir þvert á móti að verið sé...