PERSPECTA

News from every angle

ruv

Náttúruafl og aðgerðasinni í heila öld

By Fréttastofa RÚV

Hann hefur farið með okkur niður á hafsbotn, að kjarna jarðar, inn í myrka frumskóga og upp í hæstu trjákrónur. Leitt okkur að náttúrunni í öllum sínum myndum. Frætt og skemmt í meira en 70 ár. Þetta er David Attenborough. Eins manns náttúruafl. Snigill, tré, fífill og rækja Attenborough hefur verið heiðraður á allan mögulegan hátt. Snigill, tré, könguló, risaeðla, fífill og rækja eru meðal þeirra tuga dýra og plantna sem hafa verið nefnd í höfuðið á honum. Fáir hafa haft jafnmikil áhrif á ...