ruv
Engar handtökur í samkvæmi Hells Angels
By Fréttastofa RÚV
Enginn var handtekinn þegar lögregla fylgdist með samkomu í félagsheimili Vítisengla í Auðbrekku í Kópavogi frá því fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var hún með viðbúnað til um klukkan eitt í nótt. Götum við félagsheimilið var lokað, allir sem komu voru beðnir um skilríki og leitað á þeim. Eggvopn fannst á einum gestanna og ætluð fíkniefni á öðrum. Það var afgreitt með skýrslutöku á staðnum. Lögreglan hefur áður haft mikinn viðbúnað þegar Hel...