PERSPECTA

News from every angle

ruv

Stórir ísjakar nálægt Íslandi: „Við erum að sjá þetta oftar síðustu ár“

By Fréttastofa RÚV

Stórir borgarísjakar norðan og vestan af landinu sáust í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær. Einn jakanna, sem er norðvestan við Húnaflóa, er tæplega 400 metra hár og um 200 metra langur. Ísjakarnir eru nær landi en gengur og gerist. Marcel de Vries, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir erfitt að segja til um hve margir ísjakarnir séu. Veðurstofan fylgist með ísjökunum með gervitunglum sem gefi ekki nógu góða mynd til að áætla fjölda. „En við fengum miklar og góðar upplýsingar ...