ruv
Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt
By Fréttastofa RÚV
Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt. Mest verða áhrifin í Afríku sunnan Sahara sem og í Asíu. Þetta sagði Alexander De Croo, yfirmaður Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, við AFP-fréttaveituna í París í dag. Stofnunin gerði rannsókn þegar sex vikur voru liðnar af stríðinu og áætlar að jafnvel þótt því lyki þá yrði 32 milljónum manna steypt út í fjárhagslega óvissu í 160 löndum. De Croo segir þetta öfuga þróun. „Það tók áratugi að byggja upp stöðug samfélög, st...