ruv
Ógeðfellt að kenna leiðangur við skemmdarverk
By Fréttastofa RÚV
Leiðangur samtaka Pauls Watsons gerir hvalverndunarsinnum ógagn, segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segir ekkert hafa komið Kristjáni Loftssyni forstjóra Hvals betur en þau verk sem Paul Watson hafi unnið. Paul Watson sem var í samtökunum Sea Sheapard lýsti yfir ábyrgð á því að hafa sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn 1986. Nú er skipið Bandero á vegum samtaka hans Captain Paul Watson Foundation á leið til landsins í þeim tilgangi að gera al...