PERSPECTA

News from every angle

ruv

Svartur reykur yfir Moskvu

By Fréttastofa RÚV

Stórir reykjarbólstrar stigu til himins yfir suðurhluta Moskvu eftir drónaárásir Úkraínumanna í morgun. Þá loguðu eldtungur í olíuframleiðslustöð í hverfinu Kapotnija í útjaðri borgarinnar. Þung lykt olli íbúum líka óþægindum. Árásin var svar við árás Rússa á Úkraínu í síðustu viku, þar sem fornt klaustur í Kyiv var meðal annars skemmt. Rússar segjast hafa skotið niður 180 dróna í nágrenni Moskvu.