ruv
Telja íslensku mjólkina leiða til minni meltingartruflana en aðra mjólk
By Fréttastofa RÚV
Margt bendir til að íslenska mjólkin innihaldi hærra hlutfall sértaks prótíns en önnur mjólk sem gerir hana þar með heilsusamlegri. Hópur vísindamanna við Háskóla Íslands rannsakar um þessar mundir efnasamsetningu mjólkurinnar. Margar tegundir prótína eru í mjólkinni og þau finnast í mismunandi hlutföllum eftir því hvaðan mjólkin er upprunnin. Rannsakendur skoða nú svokölluð A1 og A2 beta-casein prótín. Talið er að íslenska mjólkin sé ríkari af A2 prótínum en gengur og gerist. Ólík prótín haf...