ruv
Kosningasamkomulag um ríkislóðir kann að vera ólögmæt ríkisaðstoð
By Fréttastofa RÚV
Reykjavíkurborg ætlar að skoða hvort og þá hvernig sé hægt að segja upp samkomulagi við ríkið um uppbyggingu á ríkislóðum. Borgarlögmanni verður falið að rýna möguleika borgarinnar á uppsögn eða afturköllun samkomulagsins, sem er frá því í apríl. Þetta var samþykkt í borgarráði á þriðjudag. Samningurinn snýr að uppbyggingu 1.400 íbúða á lóðum, sem hafa verið nýttar undir húsnæði ríkisins. Lóðirnar hafa þótt vannýttar og lengi staðið til að auka byggingarmagn. Samkomulagið var undirritað í lok...