ruv
Bandaríkjaforseti vill erlend herskip bandaþjóða að Hormússundi
By Fréttastofa RÚV
Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að hann ætli að opna Hormússund bráðlega og að það verði öruggt og frjálst. Hann vonast til þess að Kína, Frakkland, Japan, Suður-Kórea og Bretland sendi herskip í Hormússund, svo Íranir geti ekki ógnað flutningaskipum sem eiga leið um sundið. Þangað til muni Bandaríkjaher gera miklar árásir við strandlengju Írans og skjóta á írönsk skip. Enn sem komið er hafa ríkisstjórnir þessara ríkja ekki tjáð sig um ...