ruv
Allt í járnum í einvígi Atlético og Arsenal
By Fréttastofa RÚV
Liðsmenn Arsenal fagna marki sínu í kvöld.EPA / KIKO HUESCA Atlético Madríd og Arsenal skildu jöfn 1-1 í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Leikið var á heimavelli Atlético á Spáni. Arsenal komst yfir á 44. mínútu með marki Viktors Gyökeres úr vítaspyrnu. Atlético fékk svo víti eftir um tíu mínútna leik í seinni hálfleik og Julian Alvárez skoraði úr því og jafnaði í 1-1. Þar við sat og því er allt í járnum fyrir síðari leik liðanna sem spilaður verður á heimave...