PERSPECTA

News from every angle

ruv

Rannsaka dularfullan dauða 14 afríkufíla

By Fréttastofa RÚV

Keníska náttúruverndarstofnunin KWS rannsakar nú dularfullan dauða 14 afríkufíla. Fílarnir fundust látnir í suðurhluta Kenía nærri Amboseli-þjóðgarðinum. Ekki liggur fyrir nein skýr dánarorsök en hræ fílanna eru nú til rannsóknar hjá KWS. Vefsýni úr hræunum geta varpað ljósi á hvort sjúkdómur eða eitrun hafi orðið þeim að bana eða hvort aðrir þættir hafi mögulega haft áhrif. Samkvæmt yfirvöldum í Kenía er þetta í fyrsta sinn í áratugi sem svo margir fílar hafa drepist á svæðinu en stjórnvöld ...