ruv
Endurheimtu 2.500 ára gullhálsmen keltneskrar prinsessu sem var stolið á föstudag
By Fréttastofa RÚV
Franska lögreglan hefur endurheimt 2.500 ára gamalt hálsmen úr skíragulli sem stolið var úr Pays Châtillonnais-safninu í Búrgund-Franche-Comté-héraði á föstudag. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Þetta kom fram á blaðamannafundi Catherine Pégard, menningarmálaráðherra Frakklands, í gær þegar hún kynnti nýja öryggisstefnu fyrir opinber söfn. Þjófnaðurinn sem átti sér stað á föstudagsmorgun var mikið áfall fyrir safnafólk í Frakklandi. Hálsmenið, sem vegur 480 grömm ...