ruv
Málning mögulega borist í Sauðá
By Fréttastofa RÚV
Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá mögulegri mengun í Sauðá í Skagafirði á Facebook í dag. Í tilkynningunni segir að mögulega hafi efni komist í ána og að þau berist nú niður með henni. Talið er að málning hafi með einhverjum hætti borist í ána, þetta segir Svavar Sigurðsson heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Vestra í samtali við fréttastofu. „Okkur sýnist þetta vera hefðbundin málning en ekki olíumálning, sem betur fer.“ Hvetur íbúa til að hafa samband geti þeir veit...