ruv
Árásir á ný eftir nokkurra daga hlé
By Fréttastofa RÚV
„Hefnd er óumflýjanleg,“ stendur á götuskilti í Teheran. Íranar hófu árásir á ný á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum í kvöld eftir nokkurra daga hlé.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Bandaríkjaher og her Sádi Arabíu gerðu árásir á hernaðarlega innviði víða í Íran í nótt. Árásirnar eru sagðar svar við árásum Írana á herstöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum fyrr í kvöld samkvæmt færslu hersins á X. Bandaríski herinn greindi frá því í annarri færslu á X fyrr í kvöld að herinn hefði skotið nið...