ruv
Trump-fjölskyldan hagnaðist um milljarða á rafmyntum
By Fréttastofa RÚV
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og synir hans hafa hagnast um 2,3 milljarða bandaríkjadala með sölu og markaðssetningu rafmynta frá því Trump var endurkjörinn í embætti forseta í nóvember 2024. Fjárfestar hafa hins vegar tapað álíka upphæð. Þetta leiðir greining fréttaveitunnar Reuters í ljós. Þar er sjónum beint að fjórum verkefnum þeirra feðga sem öll fylgja sömu formúlu. Trump-feðgar, einkum elstu synir hans tveir, hafa vakið áhuga á verkefnunum og laðað til sín fjárfesta með þeim afl...